Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er að byrja aftur!

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er að fara aftur af stað! Á haustönn hittumst við í kirkjunni alla sunnudaga kl. 10:30 en eftir áramót í Safnaðarheimilinu á sama tíma. Byrjum 10. september. Í sunnudagaskólanum syngjum við mikið, heyrum biblíusögur og uppbyggilegan boðskap, bregðum á leik en æfum okkur líka að kyrra hugann í bæn, og auðvitað kíkja brúðurnar í heimsókn. Samverurnar eru ca. 40 mín. langar en eftir þær endum við alltaf á að lita mynd og fá okkur hressingu. Sunnudagaskólinn hentar börnum frá 2-3 ára aldri og upp úr og þið eruð velkomin. Umsjón hafa Sándor við hljóðfærið, Elísa, Guðný, Ragnheiður og prestarnir.

Posted on 08/09/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd