Helgihald í Egilsstaðaprestakalli helgina 22.-23. júlí

Möðrudalskirkja

Laugardaginn 22. júlí verður skírnarguðsþjónusta í Möðrudalskirkju kl. 11. Prestur er sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, organisti Halldór Warén og meðhjálpari Sefán Frímann Jökulsson. Innilega velkomin.

Egilsstaðakirkja

Sunnudaginn 23. júlí er kyrrðar- og íhugunarguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 20. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir leiðir íhugun í kringum orð Jesú í Jóhannesarguðspjalli „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra er til mín kemur og þann aldrei þyrsta er á mig trúir“. Innilega velkomin.

Posted on 21/07/2023, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd